SOZO býður upp á aðföng til skartgripagerðar, studs fyrir fatnað og aðra aukahluti sem gera þér kleift að setja þinn eigin svip á hlutina.
Vörurnar henta bæði þeim sem vilja búa til eitthvað frá grunni og þeim sem vilja uppfæra hluti sem þau eiga nú þegar. Hvort sem þú vilt uppfæra gamla tösku, búa til þitt eigið hálsmen, skreyta flík eða setja saman persónulega gjöf, þá finnur þú vörur hjá SOZO sem henta í verkið.
Markmið SOZO er að veita innblástur og gera sköpunarferlið einfalt, skemmtilegt og aðgengilegt.