SOZO

Almennir skilmálar

Síðast uppfært: 27. maí 2026

Skilmálar þessir gilda um kaup á vörum í netverslun SOZO. Með því að leggja inn pöntun staðfestir viðskiptavinur að hann hafi kynnt sér og samþykkt skilmála þessa.

1. Pantanir

Pantanir eru lagðar inn í gegnum vefsíðu SOZO. Viðskiptavinur ber ábyrgð á að allar upplýsingar sem gefnar eru upp við pöntun séu réttar, þar á meðal nafn, netfang, símanúmer og afhendingarupplýsingar. SOZO áskilur sér rétt til að hafna eða afturkalla pöntun, til dæmis ef vara er uppseld, rangt verð hefur verið birt eða ef rangar upplýsingar hafa verið gefnar upp.

2. Verð og greiðslur

Öll verð og færslur eru í íslenskum krónum. Greiðslur fara fram í gegnum örugga greiðslugátt Verifone. SOZO varðveitir ekki kortanúmer eða öryggisnúmer greiðslukorta. Sendingarkostnaður kemur fram áður en gengið er frá pöntun. Pöntun telst staðfest þegar greiðsla hefur borist.

3. Afhending

Almennt má gera ráð fyrir að pöntun sé afhent til Dropp innan 1–2 daga frá því að greiðsla berst. Afhendingartími eftir það fer eftir afhendingarferli Dropp hverju sinni. SOZO getur ekki ábyrgst nákvæman afhendingartíma eftir að pöntun hefur verið afhent til Dropp, en mun aðstoða viðskiptavin ef tafir eða vandamál koma upp í afhendingarferli. Viðskiptavinur ber ábyrgð á að afhendingarupplýsingar séu réttar, þar á meðal nafn, símanúmer, netfang og afhendingarstaður. Ef pakki skilar sér ekki vegna rangra eða ófullnægjandi upplýsinga getur viðskiptavinur þurft að bera kostnað vegna endursendingar.

4. Skil, skipti og réttur til að falla frá kaupum

Viðskiptavinur hefur 14 daga frá afhendingu vöru til að falla frá kaupum, í samræmi við lög um neytendasamninga. Til að nýta réttinn skal viðskiptavinur hafa samband við SOZO á sozo@sozo.is innan 14 daga frá afhendingu. Vöru skal skila ónotaðri, óskemmdri og í upprunalegum umbúðum, eftir því sem við á. Viðskiptavinur ber beinan kostnað af endursendingu vöru nema um gallaða eða ranglega afgreidda vöru sé að ræða. Skilagjald er greitt í gegnum skilagátt Dropp. SOZO býður upp á skipti, gjafabréf eða inneign ef viðskiptavinur óskar eftir því í stað endurgreiðslu. Endurgreiðsla fer fram þegar vara hefur borist SOZO aftur. Endurgreitt er með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin, nema viðskiptavinur samþykki sérstaklega að fá gjafabréf eða inneign í staðinn. Réttur til að falla frá kaupum á ekki við um sérsniðnar vörur eða vörur sem eru sérstaklega útbúnar samkvæmt ósk viðskiptavinar.

5. Gölluð vara eða ranglega afgreidd pöntun

Ef vara reynist gölluð, skemmd við afhendingu eða ef röng vara hefur verið send, biðjum við viðskiptavin að hafa samband við SOZO eins fljótt og auðið er á sozo@sozo.is. Í skilaboðunum skal koma fram pöntunarnúmer, lýsing á gallanum eða frávikinu og myndir af vörunni og umbúðum, ef við á. SOZO leitast við að leysa málið með viðeigandi hætti, til dæmis með nýrri vöru, afslætti eða endurgreiðslu, eftir því sem við á hverju sinni. Þessi ákvæði skerða ekki lögbundin réttindi neytenda vegna galla.

6. Vörumyndir og lýsingar

SOZO leggur áherslu á að vörumyndir, lýsingar og upplýsingar á vefsíðunni séu eins nákvæmar og mögulegt er. Litir geta þó birst örlítið mismunandi eftir skjástillingum, birtu og tækjum. Smávægilegur munur á lit, áferð, stærð eða útliti telst ekki endilega galli, enda sé varan í samræmi við almenna vörulýsingu. SOZO mælir með að skoða vörulýsingu áður en varan er keypt til að átta sig á stærð og tilgang.

7. Framboð vara

Allar vörur eru seldar með fyrirvara um birgðastöðu. Ef vara reynist uppseld eftir að pöntun hefur verið lögð inn mun SOZO hafa samband við viðskiptavin og bjóða lausn, til dæmis endurgreiðslu eða aðra sambærilega vöru ef við á.

8. Persónuupplýsingar

SOZO vinnur persónuupplýsingar í tengslum við pantanir, afhendingu, greiðslur og þjónustu við viðskiptavini. Nánari upplýsingar má finna í persónuverndar- og vafrakökustefnu SOZO.

9. Ábyrgð

SOZO ber ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til rangrar notkunar vöru, eðlilegs slits, óviðeigandi meðferðar eða þess að vara sé notuð á annan hátt en ætla má af eðli hennar. Viðskiptavinur ber ábyrgð á að meðhöndla smáhluti, perlur, festingar og skartgripi með varúð. Vörur SOZO geta innihaldið smáhluti og eru ekki ætlaðar ungum börnum. Vörurnar skal geyma þar sem börn ná ekki til.

10. Breytingar á skilmálum

SOZO áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum eftir þörfum, til dæmis vegna breytinga á lögum, þjónustu, afhendingarleiðum eða rekstri netverslunarinnar. Nýjasta útgáfa skilmálanna verður ávallt aðgengileg á vefsíðu SOZO.

11. Lög og ágreiningur

Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Komi upp ágreiningur hvetur SOZO viðskiptavin til að hafa samband fyrst á sozo@sozo.is svo hægt sé að leysa málið með sanngjörnum hætti.