Jump rings
Jump rings eru litlir tengihringir sem hægt er að nota á marga vegu. Þeir eru til dæmis notaðir til að hengja charms á keðjur, eyrnalokka eða annað, eða til að festa skal lobster clasp-festingu á keðju.
Einnig er gott að nota jump rings þegar skraut er hengt á hook eyrnalokka, þar sem það gefur jafnara og snyrtilegra útlit.
Mælt er með að nota skartgripatöng þegar jump rings eru opnaðir og lokaðir. Til að opna jump ring rétt á að snúa endunum varlega til hliðar, öðrum endanum í átt að þér og hinum frá þér. Ekki toga endana beint í sundur, þar sem það getur teygt vírinn og skemmt hringlaga lögunina.

Hooks eyrnalokkar
Þegar skraut er fest á hook eyrnalokka er mælt með að opna litla hringinn neðst á lokknum með skartgripatöng. Það einfaldar ferlið og gerir það auðveldara að festa skrautið á.
Eins og fram kom fyrir ofan er mikilvægt að nota jump rings þegar mörg hengiskraut er hengd á hook eyrnalokka, þar sem það gefur jafnara og snyrtilegra útlit.


Hoops eyrnalokkar
Til að þræða perlur á hoop eyrnalokka er mælt með að beygja festipinnann varlega niður með töng svo að hann sé beinn. Þá er auðveldara að þræða perlurnar á lokkinn.
Þegar perlurnar eru komnar á lokkinn er festipinninn beygður varlega aftur í upprunalega stöðu svo hægt sé að loka lokknum.

Head pins
Head pins eru notaðir til að þræða perlur og búa til skraut sem hægt er að festa á eyrnalokka, keðjur eða aðra fylgihluti.
Þegar perlur hafa verið þræddar á pinnann er mælt með að nota skartgripatöng til að móta lykkju efst á pinnanum. Lykkjan er síðan notuð til að festa skrautið við annan hlut, til dæmis jump ring eða eyrnalokk.

Studs
Áður en byrjað er að setja studs á flík er gott að ákveða staðsetningu fyrirfram. Mælt er með að raða þeim fyrst á flíkina áður en þeir eru festir.
Til að festa studs er þrýst létt á þá svo oddarnir fari í gegnum efnið. Síðan er hægt að nota flatan hluta á skærum eða öðru hentugu áhaldi til að ýta oddunum inn að miðju og festa þá.
Mælt er með að handþvo flíkur sem hafa verið skreyttar með studs. Ef flíkin er þvegin í þvottavél er best að þvo hana á röngunni, á rólegri stillingu og við lágan hita.


Cable keðja
Cable keðju er hægt að klippa niður með góðum skærum eða klippitöng.
Best er að klippa í sundur hlekkinn sjálfan, frekar en þar sem hlekkirnir tengjast saman.
Eftir að keðjan hefur verið klippt er hægt að festa jump ring ásamt lobster clasp á endann til að búa til hálsmen, armband eða annan fylgihlut. Einnig er hægt að nota cable keðju sem hangandi skraut á eyrnalokka.

Paperclip keðja
Paperclip keðja er sterkari og þykkari en cable keðja. Því er mælt með að nota klippitöng til að klippa hana í sundur.
Eftir að keðjan hefur verið klippt er hægt að festa jump ring ásamt lobster clasp á endann til að búa til hálsmen, armband eða annan fylgihlut.